ALT ef miðað er við upphafspunkt tímatalsins er rökrétt að byrja í betlehem troða sér inn í fæðingarkirkjuna og láta mannfjöldann mjaka sér áfram gegnum þvala rangala kristindómsins niður í hellinn þar sem frelsarinn fæddist þangað fara þó einungis þær skrásettu sálir sem afsala sér athafnafrelsinu því eins og öll heimsbyggðin veit sitja jarðneskir herskarar um brauðhúsin

ALT Ætli ég hafi ekki orðið átta ára þá um sumarið. Það var um hádegisbilið síðsumars að ég skrapp einsömul niður að á. Venjulega stóð trébali fullur af vatni á árbakkanum, konurnar notuðu hann til þvotta en við krakkarnir geymdum stundum í honum síli sem við veiddum í ánni. Við slepptum þeim fljótt aftur, vorum bara að skoða þau. Ég fór úr skónum og óð berfætt út í grunna ána. Vatnið var tært og kalt. Stór síli skutust

ALT milli steina. Mér tókst strax að fanga eitt og hljóp með það í lófanum og sleppti því í balann. Um leið uppgötvaði ég að vatnið var sjóðheitt, tilbúið fyrir þvott - silungurinn rak upp skerandi vein og flaut dauður með hvítan kviðinn upp úr vatninu. Hvað eru staðreyndir og skynsemi ef reynslan stangast á við hvorutveggja? Fiskar hafa enga rödd, segir þú, þeir gefa ekki frá sér hljóð. En ég man nístandi óp silungsins

![Þú veist í hjarta þér [brot] Höf. Þorsteinn Valdimarsson þú veist í hjarta þér kvað vindurinn að varnarblekkingin er dauði þinn engin vopnaþjóð er að vísu frjáls, og að vanda sker hún sig fyrr á háls en óvin sinn](https://pbs.twimg.com/media/Fw-tiGEagAEsADJ.png?name=small&format=webp)