vænghaf retweeted
Þetta er Eyrún Eyþórsdóttir. Hún kennir skyldunámskeið í lögreglufræði við Háskólann á Akureyri sem nefnist „Fjölbreytileiki og löggæsla“.
Hún var áður varaþingmaður Vinstri grænna en sagði sig úr flokknum árið 2019 vegna ósættis við fyrirhugaðar breytingar á ákvæði almennra hegningarlaga um hatursorðræðu, sem hún taldi ganga of langt í þágu tjáningarfrelsis á kostnað verndar minnihlutahópa.
Í janúar 2016 tók hún við stjórn rannsókna á hatursglæpum hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Sama ár var Pétur Gunnlaugsson, útvarpsmaður á Útvarpi Sögu, ákærður fyrir hatursorðræðu í kjölfar rannsóknar lögreglunnar.
Pétur var sýknaður árið 2017 og sakarkostnaður greiddur úr ríkissjóð.
Eyrún virðist einnig taka inntökuviðtöl við verðandi lögreglumenn. Ég merkti í gulu eitt sem mér fannst mjög áhugavert.
Eyrún útskýrir að erfitt sé að fá fólk til að viðurkenna fordóma sína og því sé farin sú leið að spyrja verðandi lögreglumenn um viðhorf þeirra til þess að læra um þessi málefni.
Eru efasemdir nemenda um gagnsemi námsefnisins þá túlkaðar sem vísbending um undirliggjandi fordóma?
Ef svo er virðist verið að leggja gildru fyrir nemendur þar sem gagnrýnin afstaða til námsefnisins er túlkuð sem staðfestingu á fordómafullum viðhorfum.
Eyrún hefur einnig sagt að lögreglan eigi að fylgja svokallaðri „zero tolerance“-stefnu gagnvart fordómum.
Þetta minnir mig á orð Fjölnis Sæmundssonar, formanns Landssambands lögreglumanna og fyrrverandi varaþingmanns Vinstri grænna, um að lögreglumenn þori einfaldlega ekki að tjá skoðanir sínar opinberlega af ótta við afleiðingarnar.
vænghaf retweeted
Spurning til forsætisráðherra:
Þegar hún segir að hagvöxtur sem byggist á fjölgun fólks í vinnuaflsfrekum greinum sé ekki sjálfbær til lengri tíma, er hún þá að gefa til kynna að útgjöld hins opinbera vegna fjölgunar erlends vinnuafls séu meiri en þær skatttekjur sem fjölgunin skilar?
Það gleður mig mjög að forsætisráðherra Íslands virðist loksins vera farin að sjá ljósið. Ég hef árum saman haldið því fram að innflutningur erlends vinnuafls í störf þar sem framleiðni er lítil hafi neikvæð áhrif á lífskjör bróðurparts Íslendinga.
Ýmsir atvinnurekendur, fasteignafélög og eignameira fólk hafa hins vegar notið góðs af þessari þróun.
vænghaf retweeted
According to new official data, Trump only deported 60,000 people in 2025.
And now he won’t stop talking about an amnesty for 2 million DACA-eligible illegals.
Anybody who told you to “trust the plan” should never be taken seriously again.
Hermann Jónasson (1896–1976) var forsætisráðherra Íslands þegar seinni heimsstyrjöldin skall á. Hinn 10. maí 1940, daginn sem Bretar hernámu landið, ávarpaði hann landsmenn í útvarpinu og sagði þeim frá því sem hafði gerst.
Mánuði fyrr höfðu Þjóðverjar hernumið Danmörku. Þá fól Alþingi ríkisstjórn hans að fara með konungsvaldið og utanríkismálin, og Íslendingar tóku þannig í raun stjórn allra sinna mála í eigin hendur, fjórum árum fyrir lýðveldisstofnunina. Frá 1939 til 1942 leiddi Hermann svokallaða þjóðstjórn, þar sem þrír stærstu flokkarnir unnu saman í gegnum fyrstu stríðsárin. Árið 1941 gerði stjórnin herverndarsamninginn við Bandaríkin, og bandaríski herinn tók við vörnum landsins af Bretum.
Hermann var forsætisráðherra tvisvar, 1934–1942 og 1956–1958, samtals í rúm tíu ár. Aðeins Davíð Oddsson hefur setið lengur.
Fyrsta ríkisstjórn hans, samstarf Framsóknar og Alþýðuflokksins, var kölluð „stjórn hinna vinnandi stétta“. Þar sat verkalýðsflokkur í fyrsta sinn í ríkisstjórn á Íslandi. Stjórnin setti alþýðutryggingalögin árið 1936, sem lögðu grunninn að almannatryggingum á Íslandi. Hún lét líka byggja verkamannabústaði og jók opinberar framkvæmdir til að vinna gegn atvinnuleysi í kreppunni. Árið 1938 setti ríkisstjórn hans vinnulöggjöfina, sem er enn grunnurinn að samskiptum stéttarfélaga og atvinnurekenda.
Hermann hefur líka, aðallega á síðari árum, verið gagnrýndur fyrir stefnu sína gagnvart gyðingum sem flúðu undan nasistum á árunum fyrir stríð. Sem dómsmálaráðherra bar hann meginábyrgð á því að Ísland neitaði nær öllum þeirra um hæli, og nokkrum var vísað úr landi.
Árið 1938 lýsti hann Íslandi sem „harðlokuðu landi“. Flóttamaðurinn Hans Mann, danski erindrekinn C. A. C. Brun og breski erindrekinn Berkeley Gage höfðu allir eftir Hermanni að honum hefði verið umhugað um að vernda „hreint kyn“ Íslendinga og að stefna hans hafi litast af því.
Ég læt fylgja með umfjöllunina um málið af Wikipedia-síðu hans.
Seinni ríkisstjórn hans, 1956–1958, er talin fyrsta vinstristjórn Íslands. Í henni sátu Framsóknarflokkurinn, Alþýðuflokkurinn og Alþýðubandalagið. Stjórnin ætlaði að senda bandaríska herinn úr landi en frestaði því eftir uppreisnina í Ungverjalandi og Súesdeiluna haustið 1956. Árið 1957 stofnaði hún Húsnæðismálastofnun ríkisins, meðal annars til að útrýma bröggunum. Þá bjó fólk enn í um 500 bröggum í Reykjavík. Hinn 1. september 1958 stækkaði stjórnin fiskveiðilögsöguna í 12 mílur, sem leiddi til fyrsta þorskastríðsins við Breta. Hún féll í desember sama ár, þegar Alþýðusambandið hafnaði beiðni Hermanns um að fresta launahækkunum.
Hermann sat á Alþingi í 33 ár, frá 1934 til 1967, og var formaður Framsóknarflokksins í 18 ár. Áður en hann fór í stjórnmál var hann lögreglustjóri í Reykjavík, og árið 1921 varð hann glímukóngur Íslands.
Sonur hans, Steingrímur Hermannsson, varð líka forsætisráðherra, og það tvisvar. Í hans tíð, árið 1986, hittust Ronald Reagan og Míkhaíl Gorbatsjov á leiðtogafundinum í Höfða. Barnabarnið, Guðmundur Steingrímsson, sat á Alþingi og stofnaði Bjarta framtíð. Þrír ættliðir á Alþingi, tveir forsætisráðherrar.
Þetta er atriði þar sem Ragnheiður Brynjólfsdóttir, dóttir Brynjólfs Sveinssonar biskups í Skálholti, er látin sverja eið í Skálholtskirkju árið 1661 til að sýna fram á að hún sé hrein mey. Níu mánuðum seinna eignaðist hún barn með Daða Halldórssyni, sem var kennari hennar. Þetta var eitt mesta hneykslismál síns tíma, enda var Brynjólfur faðir hennar einn valdamesti maður landsins.
Atriðið er úr sjónvarpsútgáfu frá 1970 af leikritinu Í Skálholti eftir Guðmund Kamban. Hann skrifaði það upp úr skáldsögu sinni, Skálholti. Kamban var skotinn til bana af dönskum andspyrnumönnum í Kaupmannahöfn 5. maí 1945, sakaður um að hafa unnið með Þjóðverjum. Það var aldrei sannað.
13
318
vænghaf retweeted
The Ministry of Justice has refused to release 2025 conviction data by nationality, on top of 2018–24.
So I logged every Crown Court hearing for 61 days: 42,364 people, 69 courts.
Here’s what the public lists show 🧵
vænghaf retweeted
Nick Fuentes says rightwingers need to adapt and emulate Zohran Mamdani
"We’ve gotta move beyond chuddery. Trump is kinda like dumb—Mamdani is very intelligent. These are the things we need to move towards."
vænghaf retweeted
Eiríkur Bergmann veltir því fyrir sér hvort þjóðríkið sé eðlilegt fyrirkomulag.
Hann segir að á Íslandi fari engin raunveruleg barátta fyrir frelsi fram og að enginn tali fyrir frjálsri för fólks milli landa.
EES-samningurinn tryggir hins vegar ríkisborgurum allra 27 ESB-ríkjanna, auk Íslands, Noregs og Liechtenstein, rétt til frjálsrar farar, atvinnu og búsetu innan svæðisins. Sjálfur er ég mjög mótfallinn þessu fyrirkomulagi.
En Eiríki finnst þetta greinilega ekki nóg. Hann vill í rauninni bara opin landamæri. Ég get allavega ekki skilið orð hans neitt öðruvísi.
Eiríkur Bergmann segir að þegar Franco lést árið 1975 hafi „auðvitað allt verið í kaldakolum“. Hann heldur því jafnframt fram að það hafi tekið Spán langan tíma að jafna sig eftir valdatíð Francos og að landið hafi ekki náð vopnum sínum fyrr en á síðustu tíu árum.
Þetta er algjör þvæla.
Stjórnartíð Francos einkenndist af pólitískum stöðugleika, mikilli iðnvæðingu og efnahagslegum framförum.
Tímabilið 1959–1974 er oft nefnt spænska efnahagsundrið (Spanish Miracle), en á þeim árum óx landsframleiðsla Spánar að meðaltali um 6,5% á ári. Þessu mikla hagvaxtarskeiði lauk í kjölfar alþjóðlegu olíukreppunnar 1973, þegar hagvöxtur hægðist verulega og verðbólga jókst.
Spánn upplifði síðan önnur mikil hagvaxtarskeið á næstu áratugum, meðal annars frá miðjum níunda áratugnum og fram að fjármálakreppunni 2007–2008.
Það er því fráleitt að halda því fram að Spánn hafi ekki náð vopnum sínum eftir valdatíð Francos fyrr en fyrir um tíu árum.
Síðan er sú fullyrðing að Frakkland sé eða hafi verið ríkara en Spánn vegna stjórnartíðar Francos einnig algjört bull. Frakkland iðnvæddist mun fyrr en Spánn og var þegar orðið mun ríkara áður en Franco komst til valda. Munurinn á landsframleiðslu á mann milli landanna minnkaði hins vegar á valdatíma Francos og hefur haldið áfram að minnka síðan.
vænghaf retweeted
„Viðbrögð eiginmannsins eiga samkvæmt heimildum fréttastofu rætur sínar að rekja til mismunandi menningarheima.”
Þú segir ekki!
Í fréttinni kemur skýrt fram í hvora áttina aðlögunin er, jafnvel í málum sem varða líf og heilsu.
Öfug aðlögun (inngilding) á Vesturlöndum hefur haft hræðilegar afleiðingar og ekki hvað síst fyrir fólk sem þarf hjálp.
Í Evrópu eru lönd þar sem sjúkra- og slökkvilið fer ekki inn í ákveðin hverfi nema í lögreglufylgd og jafnvel hverfi sem lögreglan hættir sér ekki inn í.
Við VERÐUM að gera öllum ljóst að hér gildi íslenskar reglur og siðir en ekki fara braut síaukinnar eftirgjafar gagnvart fólki sem ætti margt ekki að vera á landinu, hvað þá að leggja Íslendingum línurnar.
vænghaf retweeted
Nú liggja fyrir upplýsingar sem varpa nýju og skýrara ljósi á heimsókn sjaríadómarans Taqi Usmani í Stórmoskuna við Skógarhlíð.
Ég lagðist í smá rannsóknarvinnu vegna heimsóknarinnar og fann m.a. ítarlega ferðasögu breska íslamska trúarfræðimannsins Abdur-Rahman Mangera, sem var sjálfur með í för. Ferðasagan birtist 3. nóvember á vef íslömsku fræðslustofnunarinnar Zamzam Academy.
Frásögnin þessa manns lýsir heimsókn Usmani með talsvert öðrum hætti en Karim Askari, formaður Stofnunar múslima á Íslandi, gerði í viðtali við Vísi 28. október sl.
Askari sagði að ekki hefði verið um opinbera heimsókn að ræða heldur hefði Usmani heimsótt moskuna í hópi ferðamanna í einkaferð sinni um Norðurlöndin.
„Hann heimsótti moskuna þar sem hún er frægur staður, rétt eins og Harpa og Perlan.“
Ferðasaga Mangera sýnir að hér er réttu máli hallað.
Um var að ræða fyrirfram skipulagða ferð 47 manna hóps (sem taldi 50 manns einn daginn). Meðal ferðafélaganna voru fjölmargir íslamskir trúarfræðimenn frá ólíkum löndum.
Ferðin var skipulögð af Hanif Dudhwala hjá bresku samtökunum Muslim Welfare Institute. Hann hefur um árabil skipulagt sambærilegar ferðir fyrir Usmani til fjölmargra Evrópulanda, meðal annars Albaníu, Bosníu, Kósovó, Búlgaríu, Möltu, Ungverjalands og Grikklands.
Slíkar ferðir eru að sögn Mangera meðal annars vettvangur trúarlegrar fræðslu, skoðanaskipta og umræðna um trúarleg álitamál.
Ferðahópurinn hafði rútu til umráða og þurfti um 25 hótelherbergi. Á komudegi, 19. október, var tekið á móti hópnum í Stórmoskunni, þar sem boðið var upp á kvöldverð og bænahald. Mangera fer sérstaklega lofsamlegum orðum um gestrisni ímams moskunnar, Usman Hijazi.
Næstu daga fylgdu frekari heimsóknir, kvöldverðir, bænahald og trúarleg fræðsla.
Miðvikudaginn 21. október fór fram sérstök fyrirlestradagskrá í Stórmoskunni.
Þar sem von var á Usmani seinna um kvöldið var Mangera fenginn til að halda fyrirlestur á undan honum. Ímam moskunnar kynnti Mangera fyrir söfnuðinum, sonur hans las upp úr Kóraninum og að fyrirlestrinum loknum svaraði Mangera spurningum viðstaddra.
Karim Askari sagði í viðtalinu við Vísi að ræða Usmani hefði verið flutt á ensku og verið almenns eðlis um íslam og mikilvægi þess að vera góð manneskja.
Samkvæmt Mangera flutti Usmani hins vegar ræðu sína á úrdú. Hún var túlkuð á ensku af íslamska fræðimanninum Muhammad ibn Adam al-Kawthari og Mangera túlkaði hana á arabísku fyrir hóp Sýrlendinga.
Í ræðunni lagði Usmani meðal annars áherslu á að múslimar yrðu að tileinka sér íslam í heild sinni. Trúin næði langt út fyrir bænahald og föstu og kenningar íslams ættu að móta alla þætti daglegs lífs, þar á meðal fjármál, samskipti fólks og hegðun þess.
En það sem vekur enn meiri athygli er að samkvæmt ferðasögu Mangera hélt Usmani aðra ræðu í Stórmoskunni daginn eftir, fimmtudaginn 22. október, á sérstakri kveðjusamkomu sem hvergi er minnst á í viðtalinu við Askari.
Á kveðjusamkomunni leiddi Usmani sjálfur bænahald og ávarpaði síðan fræðimennina og ferðafélaga sína.
Þar ræddi hann meðal annars þrjú ritverk sem hann vonaðist til að ljúka.
Eitt þessara ritverka ber heitið „Islamic Legal Code“ og er því lýst af Mangera sem ramma utan um hagnýta innleiðingu íslamskra laga í nútímanum, þar á meðal í réttarkerfum og stjórnskipun ríkja.
Þetta er sérstaklega athyglisvert í ljósi þess að Askari sagði í viðtalinu við Vísi, þegar hann var spurður út í umdeildar skoðanir Usmani, að forsvarsmenn moskunnar hefðu stöðvað hann hefði hann farið að boða slíkar skoðanir.
Ferðasagan staðfestir ekki að Usmani hafi hvatt sérstaklega til innleiðingar sjaríalaga á Íslandi eða rætt tilteknar líkamlegar refsingar. Hún leiðir hins vegar í ljós að hann ræddi ritverk sitt um innleiðingu íslamskra laga í nútímaríkjum innan veggja Stórmoskunnar.
Mangera lýsir jafnframt þeirri miklu virðingu sem Usmani var sýnd. Í lok kvöldsins hafi ímam Stórmoskunnar meðal annars beðist auðmjúklega afsökunar á því að hafa sjálfur leitt bænahaldið í viðurvist Usmani.
Líklegasta skýringin er sú að ímaminn hafi litið á Usmani sem mun lærðari og virtari trúarleiðtoga en sjálfan sig og talið að honum hefði fremur borið að leiða bænina.
Ferðasaga Mangera sýnir að heimsóknin í Stórmoskuna var mun umfangsmeiri en sú óformlega gestakoma sem Askari lýsti.
Á meðfylgjandi skjáskoti úr myndbandi sem Owais Syed birti á Facebook-síðu sinni sést hvernig tekið var á móti Usmani í Stórmoskunni, þar sem ímam moskunnar kyssir hann við komuna.
Heimild: Ferðasaga Abdur-Rahman Mangera, birt 3. nóvember:
zamzamacademy.com/2026/11/ic…
Þessar upplýsingar ættu að vekja áhuga @nutiminn og @StefnStefnsson6, í ljósi fyrri umfjöllunar um heimsókn Usmani.
vænghaf retweeted
Fann nokkrar gamlar auglýsingar frá skyndibitastöðum frá því um 2002. Verðin þá voru um 500 kr. en eru í dag um 3.000 kr.
Venjulegur launamaður var með 140 þús. kr. eftir skatt og venjuleg 65 fm íbúð í úthverfi kostaði um 6 milljónir.
Þetta þýddi að venjulegur launamaður árið 2002 gat keypt 200 skyndibita á mánuði eftir að hann var búinn að borga af íbúðinni, sem tók hann 2 ár að safna fyrir með því að leggja 20% fyrir.
Í dag er venjulegt fólk með 550 þús. eftir skatt, sem þýðir að það getur keypt 50 skyndibita á mánuði eftir að það er búið að borga af íbúðinni, sem tekur 8,5 ár að safna fyrir með því að leggja 20% fyrir.
vænghaf retweeted
íslenska þjóðin (300þ manns sirkabát) er að leggja heimsbyggðina (8 milljarðar) í einelti með því að hleypa henni ekki allri (og greiða fyrir hana að sjálfsögðu) í háskóla íslands


































