Arnar Arinbjarnarson retweeted
Athugið að þetta er ritrýnd rannsókn. Gerir Háskóli Íslands engar kröfur til slíkra rannsókna? Hvað með aðra háskólaborgara? Ætlast þeir til að verða teknir alvarlega þegar þetta er “standardinn” á efni sem kemur frá skólanum?
Arnar Arinbjarnarson retweeted
Fín grein hér. Þessi mál eru mikil vonbrigði fyrir kjósendur Viðreisnar auk þeirra sem héldu að Samfylkingin ætlaði að standa undir eigin nafngift ,,nútímalegir jafnaðarmenn”
Arnar Arinbjarnarson retweeted
Þessa dagana eru fimm ár liðin síðan tilkynnt var um stærsta miðstýrða áætlunarbúskapar verkefni Íslandssögunnar þegar lífeyrissjóðirnir skrifuðu undir viljayfirlýsingu um að fjárfesta 580 milljarða í "grænum" verkefnum á níu árum.
Upphæðin jafngilti rúmlega tvöföldum kostnaði Kárahnjúkavirkjunar en ólíkt Kárahnjúkavirkjun voru kjósendur aldrei spurðir álits og gátu ekki gefið samþykki sitt í kosningum eða refsað þeim stjórnmálamönnum sem stóðu að verkefninu.
Íslendingar eru skyldaðir til að greiða í lífeyrissjóði og hafa lítið val um hvaða lífeyrissjóð þeir greiða í. Það er klár umboðsskylda lífeyrissjóða að ávaxta þetta fé sem best en verja því ekki í gæluverkefni þeirra sem stýra lífeyrissjóðunum hverju sinni. En án samkeppni er ekkert aðhald.
Það er auðvitað erfitt að fara tilbaka í huganum um fimm ár en þá vorubæði Covid og loftlags hysterían í hámarki. Stjórnmálamenn töldu sig óbundna af reynsluviti kynslóðanna og trúðu hverju því sem þeir sáu í síðasta TED fyrirlestri eða TikTok myndbandi. Það er einmitt þess vegna sem það er mikilvægt að stofnunum eins og lífeyrissjóðum séu settar þröngar og skýrar reglur. Það er líka þess vegna að það er mikilvægt að fólk fái sjálft að ákveða hvernig lífeyrissparnaði þeirra er varið, því fólk fer betur með eigið fé en annarra.
Í tilkynningu frá lífeyrissjóðunum þegar verkefnið var kynnt fyrir fimm árum var sagt að verkefnið yrði metið árlega. Ekki hefur farið mikið fyrir því mati í fjölmiðlum, það væri fróðlegt ef fjölmiðlar athuguðu hver örlög verkefnisins hafi orðið áður en orðaflaumurinn byrjar að flæða yfir okkur af næstu COP ráðstefnu sem hefst í næstu viku.
Til að meta árangurinn af stefnunni er ekki nóg að spyrja hversu miklu fé hefur verið varið í verkefni sem eru stimpluð græn, það þarf líka að spyrja hvaða áhrif þessi stefna hefur haft á viðnámsþrótt Evrópu við innrás Rússa í Úkraínu þegar stærstu fjárfestar álfunnar voru markvisst búnir að svelta bæði orkuframleiðslu og vopnaiðnaðinn. Það væri einnig áhugavert að vita hvernig þessum fjárfestingum hefur vegnað miðað við hlutabréfavísitölur þannig að hægt verði að átta sig á hvaða kostnað almenningur hefur borið af þessari rausn lífeyrissjóðanna.
Arnar Arinbjarnarson retweeted
Strætó er prótótýpa fyrir Borgarlínu. Ef Strætó er ekki að virka, þá er það vísbending um að Borgarlína muni ekki virka. Góður punktur hér, hvers vegna ekki að færa Strætó nær því að vera eins og Borgarlína, auka framboðið, til að sjá hvort kenningin um að aukið framboð kalli fram svona miklu meiri eftirspurn standist. Það er miklu ódýrara en að láta þetta koma í ljós eftir tug- eða hundraða milljarða framkvæmdir.
Arnar Arinbjarnarson retweeted
Íslenska menntakerfið fær einkunnina fáránlega dýrt og lélegt. Sker sig alveg úr 💩
Arnar Arinbjarnarson retweeted
Frakkland er í mjög þröngri stöðu. Ríkið skuldar 117% af vergri landsframleiðslu (VLF), ríkið eyðir 57% af VLF, fjárlagahallinn er 5,4% af VLF, hagvöxtur er enginn.
Frakkland hefur komið sér í þessa stöðu með stjórnlausum ríkisútgjöldum ekki síst lífeyrisréttindum. Eftirlaunaaldur í Frakklandi er 62 ára og lífeyrir greiddur af ríkinu.
"Innri markaður" ESB er hvorki "innri" né "markaður", miklar hömlur eru á viðskipti milli landa innan ESB og afskipti hins opinbera af atvinnulífinu mikil (svo kölluð atvinnustefna).
Undanfarna áratugi hefur frönskum stjórnvöldum ekki tekist að koma böndum á ríkisreksturinn og alltaf þegar það hefur verið reynt hafa brotist úr óeirðir og lögleysa. Það hefur verið bundinn endir á það með að slá umbótum á frest og dúsum upp í ólátaseggina með auknum útgjöldum.
Nú logar landið í óeirðum, Frakkar eru í afneitun og halda þröng staða þeirra sé vegna "sveltistefnu". En skuldabréfamarkaðir eru að gefast upp á ástandinu í Frakklandi, hver vill að lífeyrissparnaður hans sé geymdur í frönskum ríkisskuldabréfum? Stjórnvöld hafa því varla neitt útspil gagnvart óeirðaseggjunum, Frakkland á nú þegar í vanda með að velta áfram skuldum sínum, ávöxtunarkrafa en 5%, sem eykur á hallarekstur enn frekar, hvað þá að þau geti aukið útgjöld.
Frakkland hefur líka lítið svigrúm til skattahækkanna, skattar eru nú þegar meðal þeirra hæstu í OECD og sliga hagvöxt verulega.
Það sem Frakkar virðast helst ætla að reiða sig á er að Evrópski Seðlabankinn (ECB) komi þeim til bjargar. Það eru áhöld um hvort ECB geti bjargað þeim eða hvort skuldir Frakklands séu einfaldlega of miklar til þess. En ef sú leið er metin fær og farin þá er það ekki hægt öðruvísi en að ECB setji Frakklandi stólinn fyrir dyrnar og krefjist úrbóta í ríkisfjármálum. Í dag er enginn stjórnmálaflokkur í Frakklandi styður slíkar breytingar og jafnvel þótt slíkur flokkur kæmi fram og næði völdum er ólíklegt að hann kæmi umbótum í framkvæmd án vargaldar.
Jafnvel ECB gæti komist framhjá reglum sínum og bjargað Frökkum án skilyrða um umbætur í ríkisfjármálum, þá er vandséð að aðrar þjóðir gætu sætt sig við það, hvers vegna ættu kjósendur annarra þjóða að sætta sig við að greiða fyrir miklu betri millifærslur í Frakklandi en þeir sjálfir njóta.
Á þessu sést auðvitað hvílík gæfa það var að Íslendingar sögðu nei í atkvæðagreiðslunni 29. ágúst. Ef við værum í evrunni þá væri klúður Frakklands líka okkar vandamál og við myndum þurfa að greiða hluta kostnaðarins.
Það er sýnu verra að við erum með stjórnlausum ríkisfjármálum og axarsköftum eins og tengingu almannabótakerfisins við laun og/eða launavísitölu hvort heldur er hærra, að apa upp mistök Frakklands.
Frakkland gæti innan skamms komist í þá stöðu að geta ekki fjármagnað sig og þurfa að grípa til róttækra aðgerða í ríkisfjármálum eins og Grikkland gerði. Slíkt væri algjört rof á þeim samfélagssáttmála sem Frakkar þó telja sig hafa. Hvort og hvernig franskt þjóðfélag kæmist í gegnum slíkt áfall er algjörlega óvíst og það er ástæða til að hafa verulegar áhyggjur af umrótinu sem því fylgir.
Sagt er að heimskur maður læri af eigin mistökum en hyggin maður læri af mistökum annarra. Því miður virðist núverandi ríkisstjórn einráðin í því að við Íslendingar þurfum að læra af eigin mistökum.
🇫🇷 FRANCE'S BORROWING COSTS HIT 24-YEAR HIGH AS DEBT FEARS MOUNT
France's 10-year government bond yield briefly topped 5% for the first time since 2002.
Violent protests, widening fiscal concerns and political gridlock are fueling a selloff in French debt.
PGIM warns of a “perfect storm” as investors question France's ability to rein in deficits.
The key risk: Rising borrowing costs could deepen France's fiscal crisis and revive eurozone debt concerns.
Arnar Arinbjarnarson retweeted
Mín kenning er þessi: Stóran hluta innanflokksmeina Viðreisnar má rekja til að það þorir enginn að benda á hið augljósa. Þorgerður Katrín gjörsamlega klúðraði lang stærsta baráttumáli flokksins sem er innganga í ESB. Hún fór fram algjörlega sóló með atkvæðagreiðslu án þess að vera búin að kanna stuðning við málið utan eigin búbblu þótt það mætti vera ljóst og reynslan 2010-15 sýndi að aðlögun og innganga gæti aldrei heppnast án víðtækrar samstöðu hagaðila. Það var ekkert ákall í samfélaginu um þessa kosningu og þegar á hólminn kom var stuðningurinn lítill. Þegar ljóst var að lítill stuðningur var við málið var reynt að halda fram að þetta væru bara könnunarviðræður, það stóðst auðvitað enga skoðun, umsókn að ríkjabandalagi er viljayfirlýsing um inngöngu.
Nei-hliðin var miklu betur undirbúin þegar boðað var til kosninganna þar var stór hópur fólks sem hefur verið að spá í þessi mál frá því amk 2009 og var strax kominn fram á ritvöllinn. Þrátt fyrir að engin ný rök hafi komið fram í sumar átti já-hliðin fá svör. Viðbrögð Þorgerðar var að hlaupa í felur og tala til þjóðarinnar í gegnum erlenda fjölmiðla, oft með skætingi. Samt var það Þorgerður sem valdi tímasetningu kosninganna og spurninguna. Hún hafði flest spil á hendi en hafði ekki haft fyrir því að kanna hvað spil það voru.
Viðbrögðin við úrslitum kosninganna hafa síðan verið barnaleg, brigsl um erlend ítök, svindl og að þjóðin sé vitlaus. Ekki bætir úr skák að Þorgerður upp á sitt einsdæmi sendir ESB bréf um að atkvæðagreiðslan var öll í plati og staða Íslands sem umsóknarríki er óbreytt, loks er reynt að keyra aðlögunina áfram með leikritinu í kringum bókun 35.
Í stjórnmálaflokki með sterka lýðræðislega hefð og flokksstofnanir væri þetta rætt en Viðreisn virðist einkennast af klíkuræði þar sem topparnir klappa hverjir öðrum á bakið og ef aðrir sjá ekki snilldina er það bara verst fyrir þá sjálfa.
Arnar Arinbjarnarson retweeted
Hverjum datt í hug að það væri góð hugmynd að leyfa ríkinu og sveitarfélögum að skuldsetja sig?
Það er bara ein góð ástæða af hverju hið opinbera ætti að skuldsetja sig, og það er fyrir mjög stórum hagkvæmum framkvæmdum. En þau lán geta lifað í sérfélögum sem geta farið í þrot.
Arnar Arinbjarnarson retweeted
„Og í fjárlagafrumvarpi fyrir 2027 er framlagið áætlað 288 ma.kr., og hækkunin því 53 ma.kr. á tveimur árum, eða nærri 23%.“
Þetta er náttúrulega algjör bilun.
Meðfylgjandi grein birtist í Morgunblaðinu í dag.
skattgreidendur.is/grein-i-m…
Arnar Arinbjarnarson retweeted
"Aðstæður hafa verið krefjandi enda hefur atvinnuleysi verið hvað mest í Evrópu í Finnlandi og stríð geisað í næsta nágrenni frá upphafi rekstrar Perroy þar,“
- Jónas Hagan að útskýra afhverju Finnar kaupa ekki Nespresso kaffi.
Kennum bara stríðinu um allt sem gerist.
Arnar Arinbjarnarson retweeted
Úr greininni:
„Tilkynningum til Barnaverndar Reykjavíkur fjölgaði úr 1.781 árið 2001 í 6.514 árið 2025, eða um 266%. Á sama tíma fjölgaði börnum á aldrinum 0–17 ára í borginni úr 28.159 í 28.302, sem nemur aðeins um hálfu prósenti”.
Tilkynningum til barnaverndar fjölgað um 266% - borgin bendir á mun eftir ríkisfangi.
nutiminn.is/forsida/tilkynni…
Arnar Arinbjarnarson retweeted
Vinnandi menn flýja landið.
Velferðarflóttamenn flykkjast til landsins.
Arnar Arinbjarnarson retweeted
Eftirlitsfulltrúar heimsóttu stórt byggingarverkefni í Garðabæ:
Einn af 30 með sveinspróf.
Tveir af 30 Íslendingar.
91 af 100 nýjum fjölbýlishúsum greinast með galla samkvæmt rannsókn HÍ.
Ítrekaðar ábendingar um brot á launum, réttindum og öryggi.
Það þýðir lítið að hvetja unga Íslendinga til iðnnáms ef við ætlum síðan að bjóða þeim upp á vinnumarkað þar sem fagmenntun þeirra er sífellt minna metin.
Ég vann sjálfur í stuttan tíma sem pípari og ætlaði að leggja fagið fyrir mig. Ég fann fljótt að ég var ekki velkominn. Á einu nýbyggingarsvæðinu var ég eini Íslendingurinn, umkringdur erlendu vinnuafli, aðallega frá Austur-Evrópu og Portúgal.
Nokkrum árum síðar sá ég í fréttum að fjölbýlishús á þessu sama svæði væru full af alvarlegum göllum.
Arnar Arinbjarnarson retweeted
Það er hrein illska að láta Íslendinga sem hafa borgað sína skatta í gegnum tíðana, í sínu landi og forfeðra sinna, sem byggðu það upp, þurfa að harka í einkageiranum við óöryggi og lágar tekjur á meðan hið opinbera hrifsar til sín tekjurnar og eyðir í vitleysu, þar með talið útlendinga.
Það er fallegt þegar einstaklingar hjálpa fólki. En það er ekki fallegt að ræna af einum og færa öðrum. Og við Íslendingar getum ekki bjargað öllum heiminum. Komum okkar eigin málum í lag. Og leyfum svo fólki að styðja fólk í öðrum löndum fyrir eigin reikning.
Erlendir lífeyrisþegar fá allt að 100% meira útborgað frá TR heldur en ég fæ útborgað fyrir 100% erfitt starf á einkamarkaði 🥲mbl.is/frettir/innlent/2026/…
Arnar Arinbjarnarson retweeted
Góð grein í @mblfrettir @arnarar - nánari vinnsla á þeim tölum sem birtar eru í greinninni sýna ótrúlegan mun á byrði innflytjenda eftir því frá hvaða landi þeir koma.
Arnar Arinbjarnarson retweeted
Ríkið og sveitarfélögin eru að blæða og með mikinn hallarekstur.
Stærsti útgjaldaliðurinn er félagslega kerfið og það er verið misnota það verulega.
Í staðinn fyrir að laga blæðinguna þá er vinnandi fólk kreyst meira með sköttum.
Vinnumarkaðurinn er kominn yfir þolmörk. Eina sem mun gerast er atvinnuleysi mun aukast og það verður meiri hallarekstur.









































